mánudagur, mars 20, 2006

Handan sjóndeildarhringsins

Núna loksins er ég farinn að sjá fram á það að þessu ferðalagi mínu að sjóndeildarhringnum sé farið að styttast í annan endann þó svo það sé allaveganna ár eftir af þessum hlutaferðarinnar, þegar ég kemst að endamörkum alheimsins mun birtast mér nýr heimur fullur af tækifærum og nýjunugm sem er mér hreinlega lokað núna, hægt að líkja þessu við að wielda forcið, þegar maður er orðinn master jedi eru mönnum engar bjargir bannaðar en eins og staðan er núna er þetta svipað og þegar kenny fer til himnaríkis, sér fullt af nöktum kvenmönnum og svo allt í einu þegar spennan og eftirvæntingin er íhámarki kemur stór feitt stöðvunarskilti og James Hetfield öskrar NO. Það mun koma sá dagur að ég geti sagt jú bara víst og vaði áfram en þangað til verð ég bara að láta arðræna mig, En annars fékk ég Little Britain í hús og hlakkar mig til að horfa á það, ásamt xfiles(sem ég er byrjaður að specca), james bond, the shiled og allt dótið sem ég á á tölvunni, veit hvað ég á að gera ef ég fæ ekki að fara í sumarfrí á sama tíma og konan eða ef ég fæ vilyrði fyrir sumarfríi svo seint að allar sólarlandaferðir verði upppantaðar. Næsta mál á dagskrá, að ræða við eflingu

föstudagur, mars 10, 2006

Fimm fingra afsláttur (eða 9 fingra afsláttur öllu heldur)

Prófaði ebay í fyrsta skipti og verð að segja að fyrstu kynni voru alveg þokkalega ánægjuleg, en keypti ég þar james bond safnið, x-files safnið og forrest gump á samtals rúmlega $100, sem á því gengi var 6600, sem er mjög gott, enda hef ég eftir ýmsum heimildum að x-files serían útí skífu kosti 14000 (fann hana ekki til sölu á netinu), james bond er á rúmlega 16000, nema snarlækkun hafi orðið frá því ég sá settið síðast til sölu. Mér reiknast til að samtals kosti þetta rúmlega 158000 kr sem er 96% afsláttur!

Talandi um fimm fingra afslátt. Það sagði einhver auglýsingin að búðin væri svo ódýr að ekki þyrfti að ræna hana, ef það væri satt að sú búð væri til, þá er hún til á ebay og er ég að gera mig kláran í að segja skiið við íslenska markaðinn, nema matvöru og fatamarkaðinn ef eitthvað er

föstudagur, mars 03, 2006

Nei hvur andskotinn


Heldurðu að lífið hafi ekki risið upp og bitið mig í rassgatið, eftir að hafa setið í launsátri og beðið þolinmótt eftir tækifæri, tækifæri sem kom þegar ég mátti minnst búast við því. Ég veit að frænka mín og frændur lesa þetta ekki, en ég óska þeim svo sannarlega samúð mína á þessum leiðindatímum